10. feb. 2002

I Salamanca er mikid af hargreidslustofum, bakarium og froskabudum. Med froskabudum a eg vid budir sem selja froska-allt, nefndu thad bara, alls konar kruttlegar styttur og bangsa, boli, ur, lampa, veski o.s.frv. Thad tok mig sma tima ad atta mig a thessu froska standi. Er froskurinn: A) Einhvers konar gud og truartakn Salamancabua B) Nyasta tiska likt og Pokemon sem hefur ekki enn nad til Islands C) I utrymingarhaettu og agodinn af vorunum fer i ad bjarga honum. Eg spurdist fyrir um thetta og komst ad thvi ad froskur er i raun takn Salamanca og thetta er svona turistadaemi. Thad eru samt margar "jonk"budir herna sem eru ekki beint turistabudir sem selja thetta dot thannig ad eg geri svo sem rad fyrir ad Salamancarar seu hrifnir af froskum almennt. En nog um thad.
I gaer tokst mer i fyrsta sinn ad opna vinflosku algjorlega a eigin spytur med tappatogara (thad ad tappinn brotnadi og thad sulladist sma ut fyrir skiptir ekki ollu mali). Eg helt ad sjalfsogdu upp a thetta med ad dreypa a vininu. Malid var nefnilega ad fyrr um kvoldid hafdi eg sed Andy vera ad opna raudvin med matnum. Mer datt i hug ad kaupa eins og eina rosavinsflosku fyrir kvoldid og tha hofst atburdaras sem hefdi ekki getad att ser stad a Islandi: Med engum fyrirvara ad kvoldi til (ekki haegt a Islandi) gat eg skokkad ut a peysunni (of kalt a Islandi) i naestu matvorubud (ekki haegt a Islandi) og keypt mer eina flosku a 200 kall (no way a Islandi). Mjog naes, thott a hinn boginn hafi flaskan i sjalfu ser farid til spillis thar sem eg var bara ein :( Stuttu seinna kom Osamu i fylgd med sex stelpum og dro mig ut a djammid. Vid donsudum af okkur skonna til klukkan 3 og eg skemmti mer bara alveg storvel. Eg gat meira ad segja haldid uppi basic samraedum vid japonsku stelpurnar i bekknum minum thar sem thaer kunna ekki mikid meira en eg :) Vid vorum svo sem ekki ad tala um ahrif evrunar a efnahagslifid en eg meina hey..... eg veit hvad hun er ad laera i Japan, ad hun a kaerasta og finnst gaman a Spani og thad er nog fyrir mig i bili :)
Eg thakka annars fyrir skemmtileg bref fra ykkur :) Mer voru einmitt rett i thessu ad berast upplysingar um thad ad Keiluhollin se heitasti hossl stadurinn i dag og ad thar er haegt ad slasa sig alvarlega. Allt sludur er hjartanlega velkomid ;)
Annars er Salamanca greinilega litil borg eins og Reykjavik, Alicia hringdi i mig og sagdist aetla ad kikja i heimsokn i kvold. Fimm minutum sidar labbar hun inn a stadinn thar sem eg er a netinu. Gaman :)

9. feb. 2002

Eg rakst loksins a spaenska strakinn sem eg by med i dag, hafdi ekkert sed hann sidan eg kom, og komst ad thvi ad hann er lika ad laera salfraedi. Vid attum ahugaverdar samraedur um salfraedi, og tha meina eg ahugaverdar a thann hatt ad minn spaenski og hans enski ordafordi er mjog takmarkadur thannig ad eg er ekki alveg viss hvad vid vorum ad tala um. En mer er bara farid ad lida eins og heima hja mer (naestum) tharna, vid satum fjogur i eldhusinu i dag og bordudum jardaber og spjolludum saman. Sidan for eg i gonguferd i goda vedrinu og settist nidur a Plaza Mayor og naut solarinnar. Vedrid herna virdist vera eins og a Islandi, mjog breytilegt. Thad var rok og rigning i fyrradag en nu er 15 stiga hiti og glampandi sol. Eg gekk um i gardinum sem er rett hja mer og horfdi a allar saetu endurnar og astfongnu porin a bekkjunum. Sidan skodadi eg adeins i budir bara ad gamni en var adallega ad skoda mannlifid. Mer finnst til daemis merkilegt ad annar hver madur er med hund herna en eg hef ekki sed neina ketti. Mer finnst lika merkilegt thetta stoduga kossaflens. Eg hef eins og thid liklega vitid ekkert a moti kossum og knusum en thad takmarkast yfirleitt vid nanustu vini og fjolskyldu. Thad tekur lika svo langan tima ad kyssa alla okunnuga a badar kinnar. Eg sa til daemis hop af krokkum adan sem hitti annan hop og thad thekktust greinilega ekki nema einn ur hvorum hop. Tha var farid ad kynna lidid og allir thurftu ad kyssa alla a badar og thad tok svona korter, i alvoru. Annars er eitthvad ovist med hverjir munu skipa herbergin i ibudinni naestu vikurnar. Martha flytur ut i naestu viku og Osamu er eitthvad ad spa i ad fara til Englands ad laera ad verda fotboltathjalfari. Thannig ad kannski fae eg tvo nyja sambylisfelaga, who knows. Eg er ad spa i ad fara ut i kvold med krokkunum en annars verd eg ad vera dugleg ad laera thessa helgi thvi ad i naestu viku aetla eg ad reyna ad tala bara spaensku. Gangi mer vel :)

8. feb. 2002

Thad er stundum bogg ad allt skuli loka klukkan 2 thegar eg er buin i skolanum. Mer finnst thad samt bara soldid gaman ad allt skuli vera odruvisi og merkilegt nakvaemlega hvad thad er sem er odruvisi. Daemi: 1. Hurdahunarnir eru odruvisi. 2. Their thyda allt a spaensku, Tweety er t.d. Piolin. En nog um thad i bili. I gaer forum vid 17 saman ut ad borda a stad sem var eiginlega ekki veitingastadur heldur bar og vid notudum oll bordin (settum thau saman). Svo var byrjad a Sangria og thad var borid fram halfgert hladbord, storir diskar med alls konar tapas/smarettum, risaraekjum, svinakjoti, graenmeti o.s.frv. eins mikid og vid gatum i okkur latid. Sidan var eftirrettur, einhverskonar rjomatertugums, mjog gott, og svo snafsar a linuna. Thetta kostadi mig einungis 900 krónur. A disknum voru tveir rettir sem eg thekkti ekki en bordadi med bestu lyst thangad til eg komst ad thvi ad thetta var kolkrabbi... ja eg veit, a ad vera mjog gott en mer fannst tilhugsunin halfslepjuleg, svona eins og vonda kolkrabbanornin i litlu hafmeyjuteiknimyndinni fyrir thau ykkar sem hafid sed hana. Jaeja, en svo var farid og dansad thott eg faeri ad visu heim klukkan eitt. Hinir heldu vist afram til thrju, eg tharf greinilega ad komast i betra djammform. Thad er ekkert planad um helgina en eg laet ykkur vita hvad gerist ;)
Hasta Mañana!


P.s. Thora a afmaeli i dag, til hamingju elsku Thora!!!


7. feb. 2002

Bleeeessud. Jaeja, mer er bara alltaf ad lika vistin herna betur og betur og tharf ekki lengur a thvi ad halda ad horfa a Friends i tolvunni minni a hverju kvoldi til thess ad lida eins og heima hja mer :) Eg a samt einn kulusukkpoka til goda ef heimthrain magnast upp ur ollu valdi. Eg er sem betur fer farin ad skilja meira og meira a hverjum degi og geri mer svona nokkurn veginn grein fyrir thvi hvad kennararnir eru ad segja. Thad gengur adeins verr ad svara theim en thad kemur :) Thad er alltaf nog ad gera herna og krakkarnir i skolanum fara mikid ut a lifid. I gaerkvoldi for eg a kaffihus (thar sem their spiludu GusGus) og i kvold erum vid ad fara 16 saman ut ad borda. Svo tharf madur alltaf ad laera heima, eg er ekki fra thvi ad eg se bara ansi mikid duglegri vid thad nuna en eg var i HI. Thad tekur reyndar mestan tima fyrir mig ad skilja leidbeiningarnar fyrir verkefnin.
I dag vorum vid ad laera um fjolskylduna i skolanum og attum ad segja fra fjolskyldum okkar og einhver annar atti ad skrifa aettartred okkar a tofluna. Thetta byrjadi oskop vel, japonsku stelpurnar thrjar attu frekar litlar fjolskyldur og vissu ekki hvad afar theirra og ommur hetu einu sinni. Svo kom eg og eg held ad greyid stelpuna hafi langad til ad kala mer..... eda bara ad kala ommum minum og ofum. Pabbi a nefnilega fimm systkini og mamma thrju og audvitad thurfti eg ad stafa oll nofnin. Thad tok svona 10 minutur ad komast i gegnum eitt nafn, amma Jofridur, amma Malfridur o.s.frv. thannig ad eg tharf ad halda afram i naesta tima!!!
Annars er otrulega skemmtileg reynsla ad bua einn. Eg er til daemis buin ad komast ad thvi ad: 1. Diskar vaska sig ekki upp sjalfir og 2. Thad er astaeda fyrir thvi ad mamma thin bannadi ther ad borda bara sukkuladikex i kvoldmatinn. Eg hef reyndar afar takmarkada haefileika a svidi eldamennsku og kann adallega ymsa "retti" sem samanstanda af ymis konar utgafum af skinku, osti, eggi, braudi og pasta. Thad er nu samt sma tilraunaeldamennska i gangi en eg er daudhraedd um ad kveikja i husinu thar sem eg tharf ad notast vid svona gaseldavel thar sem madur "kveikir i" hellunum. Sambylisfolki minu finnst mjog fyndid thegar eg er ad skrikja og hoppa um i eldhusinu. Skil ekki af hverju :) Theim fannst lika mjog fyndid thegar eg kom heim um daginn med 6 floskur, 9 litra af vatni,alveg ad drepast i bakinu af thvi ad rogast med thetta heim ur budinni. Vatnid var nefnilega a utsolu og eg sem Islendingur, von okeypis vatni, gat ekki latid thetta fram hja mer fara. En bididi bara thangad til eg laeri meiri spaensku, tha get eg farid ad gera grin ad theim a moti :)

6. feb. 2002

Viiiiiii.... buin i aukatimum i bili. Sem thydir thad ad eg er buin ad beygja jafn margar sagnir og hinir i bekknum. Mer finnst samt ekkert erfitt ad laera malfraedireglurnar, en thad tekur mig 5 minutur ad koma ut einni setningu og thad eru 70% likur a ad hun se vitlaus. Ekki alveg nogu gott. Uppahaldssognin min :) er bailar, ad dansa. BAILAMOS!!!
Eg komst ad thvi i gaer af hverju mer hefur fundist timaskynid mitt vera eitthvad brenglad. Eg var heillengi ad atta mig a thvi i gaer hvada manadardagur var thangad til eg sa ad dagatalid mitt var fra arinu 2000. Sooooldid sein.
Annars finnst mer frabaert ad kynnast folki fra mismunandi uppruna. I gaerkvoldi vorum vid Osamu ad bera saman japonsku og islensku sem var ferlega gaman. Svo er thad Vigga franska, hun talar agaeta ensku en med fronskum hreim og er mjog dramatisk. Hun er vist eitthvad oheppin i astarmalum og finnst mjog gaman ad raeda thad og mer finnst bara gaman ad hlusta a hana. Eg a samt stundum erfitt med ad skilja hana, t.d thegar hun sagdi: I am so hungry, I ate him!!! Eg aetladi samstundis ad hlaupa i burtu fra thessari mannaetu thegar eg attadi mig a ad hun hafdi i rauninni sagt: I am so angry, I hate him!
Ahugaverd stadreynd um Span: Hljomsveitin U2 er kollud Ú-dos a spaensku.

5. feb. 2002

Aukatimar enn og aftur. Madur verdur otrulega threyttur af thvi ad einbeita ser endalaust. Eg er semsagt i timum fra 9-2 og aukatimum fra 5:30-7. I dag i skolanum atti eg ad standa vid tofluna og tala um vedrid a Islandi i 20 minutur. Thad var..... athyglisvert svo ekki se meira sagt. I gaer komst eg ad tvi ad eg mun liklega bua med fjorum strakum innan skamms. Setan verdur alltaf uppi. Great.
P.s. takk fyrir upplysingarnar Brynja!!!!