First things first, til hamingju með afmælið
Ásdís!!!!!!!!! Ég er líka búin að taka þetta ágæta
aldurspróf nokkrum sinnum eins og
Brynja benti á að væri hægt. Fyrst var ég 13, svo 16, svo 18 og loks 17 (sumsé að meðaltali 16 ára). Þetta er allt vegna þess að a) mér finnst gos betri en bjór b) mér finnst ís betri en franskar og c) ég er klaufi og gæti ekki málað án þess að sletta málningunni í hárið á mér. Þetta er hrein og klár mismunun og ég vona að þið stelpurnar leyfið mér áfram að leika við ykkur þótt ég sé aðeins yngri en þið :(
Þetta útskýrir samt kannski af hverju uppáhaldsmyndin mín er
Sixteen candles :D
Annars var bara mjög gaman að skreppa í bæinn um helgina. Á laugardeginum fór ég í Smáralind án þess að kaupa neitt, bara svona til þess að gera eitthvað sem er ekki hægt í sveitinni :) Ég fór aðeins út á laugardagskvöldið, fyrst heim til Guðrúnar Ögmunds, aðeins í bæinn og svo hitti ég Bryn og Skvísuna á Tres Locos. Kíkti aðeins á Óla minn og Emil á Brennslunni og labbaði svo heim meðfram tjörninni í æðislegu veðri og fannst bara gaman að vera borgarbarn. Mér tókst svo að keyra nánast alla leiðina ein upp í sveitasæluna á sunnudaginn og það án þess að keyra á eða útaf. Ég er nefnilega með fóbíu fyrir að mæta stórum vörubílum og þegar það gerist lækka ég yfirleitt hraðann niður í 70, samferðamönnum mínum (og bílstjórunum fyrir aftan) til mikillar gremju. En þetta hlýtur allt að venjast. Ég fór svo loksins að vinna í gær og það var bara gaman. Fór í fótbolta sjálfviljug í fyrsta sinn á ævinni (að vera píndur í leikfimi telst ekki með), varði tvö mörk og lagði upp eitt (við vorum bara fjögur reyndar) og fannst bara stórskemmtilegt. Hljóp reyndar einu sinni út úr markinu til að forðast boltann og varði hann eiginlega óvart í hin tvö skiptin, fékk marbletti á lærin en ég meina.... nó pein, nó gein og ég vonast til að vera orðin á við Beckham í lok sumars ;) Fann reyndar aðeins fyrir því að vera eina stelpan á svæðinu. Í hvert skipti sem myndband með Birgittu Haukdal eða öðrum skutlum var í sjónvarpinu var dagskráin stöðvuð og liðið safnaðist saman í slefi fyrir framan imbann.